Ferð Atla og Hörpu til Krítar 5. til 21. september 2025Við flugum til Munchen aðfaranótt 5. september og þaðan til Iraklion um morguninn og náðum til Agios Nikolaos í Lasiþi sýslu með rútu um kvöldið. Það tafði okkur aðeins að bændur lokuðu þjóðveginum til að mótmæla einhverju og rútan fór því seint af stað. Við gistum allan tímann í airbnb-íbúð í fjölbýslishúsi við Þeotokopúlú 30. Við fórum til baka með millilendingu í Frankfurt og komum heim rétt fyrir klukkan 2 aðfaranótt 22. september. Allt flug var keypt af Lufthansa. Við skruppum fjórum sinnum í ferðir úr
fyrir Agios Nikolaos. Sú fyrsta var með rútu til Plaka
og þaðan með bát til Spinalonga, sú næsta
með rútu á Vúlitsa ströndina, sú
þriðja jeppaferð um Lasiþi-háslettuna með
viðkomu í þorpunum Kritsa og Krasi, sú fjórða
með rútu til Kritsa. |
![]() 1. Við strönd í Agios Nikolaos. |
![]() 2. Horft af svölum á íbúðinni við Þeotokopúlú 30. |
![]() 3. Horft yfir vatnið í Agios Nikolaos. |
![]() 4. Vatnið í Agios Nikolaos. |
|
![]() 6. Stytta af Seifi í nautslíki með Evrópu á bakinu í Agios Nikolaos. |
![]() 7. Ein af mörgum bröttum göngugötum í Agios Nikolaos. |
![]() 8 . Ein af mörgum bröttum göngugötum í Agios Nikolaos. |
![]() 9. Kapella við vatnið í Agios Nikolaos. |
![]() 10. Innstu virkismúrar á Spinalonga. |
![]() 11. Spinalonga - húsin voru vistarverur holdsveikra fram yfir 1950 en eyjan var holdsveikranýlenda þar til lyf fundust við veikinni. |
![]() 12. Sótthreinsunarherbergi á Spinalonga sem var notað meðan eyjan var holdsveikranýlenda. |
![]() 13. Harpa á Vúlisma ströndinni. |
![]() 14. Verslun í Kritsa. |
![]() 15. Kirkja í Kritsa. |
![]() 16. Á Roðanþi safninu í Kritsa. |
![]() 17. Þarna stoppar rútan í Kritsa. |
![]() 18. Þríburablóm í Kritsa. |
![]() 19. Lasiþi hásléttan. |
![]() 20. Atli hjá krónubreiðnum (platanos-trénu) í Krasi sem er um 2.500 ára gamalt. |
![]() 21. Grillaður hafbarri á veitingastað í Agios Nikolaos. |